Kiðjaberg Gull 24
Kiðjaberg Gull 24

Fréttir

Hull fær undanþágu fyrir LPGA
Charley Hull í Solheim-bikarnum um helgina. Mynd/golfsupport.nl
Þriðjudagur 20. ágúst 2013 kl. 07:08

Hull fær undanþágu fyrir LPGA

Charley Hull frá Englandi sló heldur betur í gegn í Solheim-bikarnum um helgina sem fram fór í Colorado..

Charley Hull frá Englandi sló heldur betur í gegn í Solheim-bikarnum um helgina sem fram fór í Colorado, Bandaríkjunum. Hull lék glimrandi gott golf og var í sigurliði Evrópu sem vann stórsigur.

Hull fór illa með Paula Creamer í tvímenning á sunnudag og sigraði 5&4. Hull er aðeins 17 ára gömul og hefur sótt um undanþágu til að reyna að vinna sér inn keppnisrétt á LPGA-mótaröðinni. Hull verður 18 ára í mars á næsta ári og leikmenn verða að vera orðnir 18 ára til að fá að taka þátt í úrtökumóti fyrir mótaröðina sem fram fer í haust.

Kiðjaberg Gull 24
Kiðjaberg Gull 24

Búið er að samþykkja undanþágu fyrir Hull sem heillaði marga með frábærri frammistöðu í Solheim-bikarnum. Hull vann tvo leiki og gerði jafntefli í einum leik af þeim þremur sem hún lék í mótinu. Hún mun keppa á Opna kanadíska kvennamótinu sem fram fer um næstu helgi eftir að hafa fengið þátttökurétt í gegnum styrktaraðila.