Hvað var Adam Scott með í pokanum í Ástralíu?
Adam Scott, sem sigraði um s.l. helgi á PGA meistaramótinu í heimalandi sínu, Ástralíu, hefur átt frábært ár sem atvinnumaður. Scott sigraði á Mastersmótinu í apríl á Augusta vellinum í Georgíu og skrifaði þar með nafn sitt í sögubækurnar sem fyrsti ástralski sigurvegarinn á risamótinu. Scott er með flottar kylfur í golfpokanum sem einn þekktasti kylfuberi allra tíma heldur á – Steve Williams frá Nýja-Sjálandi. Scott er með þessi verkfæri í Ástralíu á mótinu sem laum um helgina.
Dræver: Titleist 913D3 (9.5 gráður, Graphite Design Tour AD DI-8 skaft)
3-tré: Titleist 910F.d (15 gráður, Fujikura Rombax Pro 95 skaft)
2-járn: Titleist 712U (KBS Tour skaft)
3-9 járn: Titleist MB (KBS Tour skaft)
48 og 54 gráðu fleygjárn: Titleist Vokey Design SM4 (KBS Tour skaft)
60-gráður fleygjárn: Titleist Vokey Design TVD (KBS Tour skaft)
Pútter: Titleist Scotty Cameron Futura – langur.
Bolti: Titleist Pro V1.


