Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Bjarki Pétursson verður kylfusveinn Gulla á US Open - spennandi verkefni og heiður
Bjarki og Gulli á úrtökumóti fyrir Evrópumótaröðina 2022. Birnir Kúld eldri sonur Bjarka á milli þeirra.
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
miðvikudaginn 10. júní 2026 kl. 16:27

Bjarki Pétursson verður kylfusveinn Gulla á US Open - spennandi verkefni og heiður

Borgnesingurinn Bjarki Pétursson, fyrrverandi atvinnukylfingur er búinn að kaupa sér farmiða til New York en hann verður kylfusveinn Gunnlaugs Árna Sveinssonar, áhugakylfings sem tryggði sér þátttökurétt á erfiðasta risamóti atvinnukylfinga, Opna bandaríska meistaramótinu, US Open. Bjarki mun því taka þátt í því að skrifa nýjan kafla í golfsögu Íslands þegar hann verður „á pokanum“ hjá Gulla á Shinnecocok Hills vellinum í Southampton í New York í næstu viku.

Sagan á bak við samstarf þeirra teygir sig nokkur ár aftur í tímann, þegar hlutverkin voru öfug. Þá var Gulli kylfusveinn hjá Bjarka.

Þegar taflborðið sneri við

Saga ykkar Gulla á sér skemmtilega forsögu, er það ekki rétt?

Jú, það er alveg rétt. Gunnlaugur kom með mér út sem kylfusveinn í nokkur skipti í úrtökumótunum mínum fyrir Evrópumótaröðina fyrir nokkrum árum. Við vorum saman í GKG en þekktust ekki mjög mikið en vorum stundum saman á púttflötinni eða að slá golfbolta. hermana, taka smá púttæfingar og eitthvað svona en kynntumst meira og meir.

Ég hef alltaf verið mjög hrifinn af einstaklingum sem eru agaðir og metnaðarfullir og Gulli tikkaði í öll boxin sem mér fannst hann þurfa að gera, svo flottur peyi. Ég hringdi svo í hann og spurði hvort hann vildi koma út til mín og vera kylfusveinn hjá mér, ég skildi sjá um flugið og annað og hann var til í það. Gulli var bara 15 eða 16 ára strákur á þessum tíma, þannig að hann þurfti eðlilega að heyra í foreldrum sínum fyrst. Við tókum mjög gott samtal með þeim, það var slegið til og hann flaug út til mín. Hann stóð sig með stakri prýði, gífurlega áhugasamur og vonandi lærði hann eitthvað af þessum tíma. Hann kom líklega þrisvar sinnum út með mér á þessi mót, á öll stigin, og það var magnaður tími og gaman að hafa þennan dreng á pokanum.

Núna hefur taflborðið snúist við. Hann er náttúrulega orðinn okkar allra besti kylfingur í dag og er einn af bestu áhugamönnum í heiminum. Við skiptum því um hlutverk núna og ég hef fengið þann heiður að vera kylfusveinn hjá honum.

Þið prófuðuð þessi hlutverkaskipti í fyrra vestanhafs, hvernig gekk það samstarf?

Já, ég fór með honum út til Bandaríkjanna í fyrra á U.S. Amateur mótið, Opna bandaríska áhugamannamótið. Við gerðum bara ágætt mót þar og náðum mjög vel saman – og vonandi segir hann það sama! Við komumst í gegnum niðurskurðinn á sterkasta áhugamannamóti heims og við áttum þarna virkilega góða daga í æfingahringjum og á mótinu sjálfu.

Út frá því byrjaði boltinn að rúlla. Við tókum samtalið þá að ef svona aðstæður myndu koma upp aftur, þá myndum við gera allt sem við gætum til að láta það ganga upp, svo lengi sem ég væri hans fyrsta val og vilji. Það varð raunin núna, sem er ógeðslega gaman fyrir okkur báða að fá að upplifa. Við erum á leiðinni á US Open í New York!

Þannig að það er mikil vinátta á milli ykkar utan vallarins líka?

Já, við erum miklir vinir. Þegar hann kemur heim til Íslands kemur hann alltaf í Borgarnes, við tökum hring og grillum saman. Við erum bara flottir félagar. Þessi drengur á allt gott skilið og rúmlega það, og hann og foreldrar hans vita að ég er alltaf tilbúinn að hjálpa honum á þann hátt sem hann óskar eftir. Hvort sem það er að klappa fyrir honum á hliðarlínunni eða taka pokann og spá og spekúlera í golfhöggum með honum.

Þetta verður hrikalega gaman og lærdómsríkt fyrir ungan Gulla, sem er ekki nema 21 árs. Vonandi bara fyrsta skrefið af einhverju stórkostlegu.

Samstarfið á vellinum og undirbúningurinn

Hvernig leggst verkefnið í þig og hvernig ætlið þið að leggja upp leikinn?

Það er náttúrulega hörku teymi í kringum hann að koma með út. Ég hef svo sem ekki verið að fylgjast nákvæmlega með hverjir aðrir eru að mæta, en það er alvöru fólk í kringum hann og þetta verður glæsilegt. 

Við Gulli höfum ekkert neglt neitt sérstaklega niður hvernig við högum okkur á vellinum, enda koma okkar samskipti og samvera frekar náttúrulega. Það hefur ekkert þurft að leggja einhverjar ákveðnar línur hingað til af því að við náum svo vel saman. Við erum báðir rólegir og yfirvegaðir drengir.

En það verður ótrúlega gaman að kljást við þetta verkefni. Þetta er stærsta afrek hans ferils hingað til. Hann er að fara að spila á móti þeim allra bestu í heiminum. Það er magnað tækifæri að fá það, ekki síst svona ungur að árum. Hann á vonandi eftir að gera mikið meira af þessu í framtíðinni. Þetta er bara eitt af þeim skrefum sem hann er að taka til þess að gera sinn feril eins jafn góðan og hann getur – og það er mjög spennandi.

Hvenær ferð þú út og hvernig þekkirðu völlinn sem spilað er á?

Ég flýg líklega út á föstudegi og hitti hann á laugardegi, þannig að við fáum góða æfingadaga saman fram að móti.

Varðandi völlinn, þá þekki ég hann svo sem ekki mikið og hef ekki spilað hann sjálfur. En við erum með gott teymi í kringum okkur sem er að kynna sér völlinn mjög vel. Við erum með færustu tölfræðikalla í Evrópu, ef ekki í heimi, í teyminu með okkur – þar á meðal Sigmund Einar Másson (Íslandsmeistara 2006). Ég er sjálfur farinn að kynna mér völlinn vel, skoða myndbönd og horfa á þau mót sem hafa verið haldin þarna til þess að átta mig á hvernig hann spilast.

Við hverju búist þið á US Open? Völlurinn verður væntanlega krefjandi eins og yfirleitt á þessu mót?

Já, þetta er það mót sem spilast yfirleitt hvað erfiðast. Flatirnar eru gífurlega harðar og hraðar, brautir þrengri og karginn þykkari. Mótið vinnst yfirleitt í kringum parið, kannski nokkra undir.

En við gerum bara okkar besta. Við fáum allar upplýsingar og munum undirbúa okkur 100%. Við stjórnum því sem við getum stjórnað. Þegar kemur að fimmtudeginum og mótið byrjar, þá er það eina sem er eftir - er að fara út, njóta, spila golf, anda inn og anda út og leyfa hlutunum að gerast.

Þetta er einstakt tækifæri. Ég held að hvorki Gulli, teymið, né Íslendingar almennt vildu hafa þetta neitt öðruvísi, sagði Bjarki að lokum.

Bjarki varð Íslandsmeistari 2020.