Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Ingunn er kylfingur vikunnar
Föstudagur 29. október 2010 kl. 15:10

Ingunn er kylfingur vikunnar

Ingunn Einarsdóttir úr GKG er kylfingur vikunnar að þessu sinni. Hún er 27 ára gömul, viðskiptafræðingur með mastersgráðu í reikningshaldi og endurskoðun, og starfar á endurskoðunarsviði Deloitte hf. Hún er í sambúð með kylfingnum Sigmundi Einar Mássyni úr GKG sem varð Íslandsmeistari í höggleik árið 2006. Að eigin sögn er Ingunn mjög stríðin og finnst æðislegt að ferðast. Hún er með 4,5 í forgjöf og fékk Kylfingur.is hana til að svara nokkrum vel völdum spurningum.

Hvenær byrjaðir þú í golfi og hvers vegna?
Prófaði golf fyrst á golfnámskeiði 6 ára gömul, mætti svo á golfæfingar á sumrin 10-12 ára en ég er ein af þeim sem valdi fótboltann fram yfir golfið á yngri árum. Það eru rúm fimm ár eru síðan ég smitaðist af golfbakteríunni.

Hefur þú verið í öðrum íþróttum?
Já, stundaði fótbolta í 8 ár og þá aðallega með Valsstúlkum, en flokkurinn var mjög sigursæll og vann til margra titla. ÁFRAM VALUR!

Helstu afrek í golfinu?
Mín helstu afrek eru 2. sætið með GKG stúlkum í Sveitakeppni GSÍ, 1. sæti í meistaramóti GKG í 1. flokki. Einnig vann ég mér þátttökurétt á árinu 2006 á BMW Golf Cup International áhugamannamóti sem haldið var út í Suður Afríku. Frábær golfferð með skemmtilegu fólki. Fékk meira segja að hitta hann Retief Goosen.

Hvað er það neyðarlegasta sem komið hefur fyrir þig á golfvellinum?
Þegar ég ætlaði að sína fótboltastelpunum golfhæfileika mína og boltinn endaði beint í bíl fótboltaþjálfarans….bíð ennþá eftir rukkuninni.

Ferðu í golfferð til útlanda í ár og ef þá hvert?
Nei ekki í ár, en er að skipuleggja golfferð til útlanda á næsta ári.

Hver er þinn helsti styrkleiki og veikleiki í golfi?
Er mikil keppnismanneskja og ágæt að pútta. Sveifluferillinn mætti vera betri og líkamsmeiðslin mættu vinsamlegast segja bless.

Hverjir eru uppáhalds kylfingarnir og af hverju?
Annika Sörenstam og Simmi limmi. Af hverju, það er bara eitthvað við hana Anniku sem fær mig til þess að fylgjast með og lesa um. Leiðinlegt að hún skuli vera hætt. Svo er Simmi limmi náttúrlega flottastur, sætastur, yndislegastur og bestur.

Ef þú mættir breyta einni golfreglu hverju myndir þú breyta?
Að leyfa ALLTAF 30-50 cm. færslur á braut.

Atvinnumaður í fótbolta eða golfi?
Fyrir 10 árum síðan var það atvinnumaður í fótbolta, en núna er það klárlega atvinnumaður í golfi.

Hvert er eftirlætisliðið í enska boltanum og hvers vegna?
Chelsea þegar Ruud Gullit byrjaði að spila fyrir liðið.

Hefur þú farið holu í höggi eða verið nálægt því?
Næsta spurning takk.

Hver er frægasta persónan sem þú er með í símanum?
Úlfar Jónsson, kylfingur seinustu aldar.

Hver er „frægasti“ kylfingurinn sem þú hefur leikið með?
Engin súper dúber frægur kylfingur sem ég hef leikið með.

Ertu hjátrúarfull hvað varðar golf?
Nei, sem betur fer ekki.

Hver er besti kylfingur landsins og hver er efnilegastur að þínu mati?
Birgir Leifur sannaði það í sumar að hann sé okkar besti kylfingur og Guðmundur Ágúst finnst mér efnilegastur.

Hvað finnst þér skemmti- og leiðinlegast við golf?
Að berjast við að ná markmiðunum og leiðinlegasta er að týna golfboltanum sínum.

Getur þú sagt okkur frá eftirminnilegri golfsögu af þínum golfferli?
Ónefndur aðili, varð fyrir því skemmtilega óláni að pútta ofaní golfholu fulla af mannasaur.

Fylgist þú mikið með golfi?
Fylgist mikið með golfinu hérna heima og horfi á risamótin; Opna Breska, US Open, Masterinn og PGA meistaramótið og Ryder Cup. Langar að geta fylgst betur með kvennamótunum.

Staðreyndir:
Nafn: Ingunn Einarsdóttir, oft kölluð Bibba
Klúbbur: GKG
Forgjöf: 4,5
Golfpokinn: Cleveland og Callaway driverar, Mizuno járnkylfur og hybrid, Cleveland 56°, Taylor Made 60° og Cleveland pútter.
Golfskór: Nike
Golfhanski: Srixon og Callaway
Markmið í golfinu: Skammtímamarkmið: Fara holu í höggi á undan Simma. Langtímamarkmið: spila að meðaltali 1 undir pari.
Fyrirmynd: Það var Rakel Logadóttir í fótboltanum. Annika Sörenstam í golfinu.
Evrópa eða Bandaríkin: Bæði betra
Uppáhalds matur: Hakk og spaghettí
Uppáhalds drykkur: Rauður Kristall plús
Uppáhalds golfhola: 7. holan í Kiðjabergi
Ég hlusta á: Margt
Besti völlurinn: Montagu völlurinn á Fancourt svæðinu í Suður Afríku
Besta skor (hvar): 71 högg (par 71) – Leirdalur, GKG, 21. maí 2009.
Besta vefsíðan: mbl.is
Besta blaðið: Fréttablaðið
Besta bókin: Engin sérstök. Bækurnar sem eru núna á náttborðinu mínu heita “Every shot must have a purpose” og “Betra golf”
Besta bíómyndin: Pretty Woman, fæ ekki leið á henni.

Myndir/úr einkasafni og ljósmyndasafni Kylfings.is: Á efstu myndinn er Ingunn ásamt atvinnukylfingnum Reteif Goosen sem hefur tvisvar sigrað á Opna bandaríska meistaramótinu.