Fréttir

Íslenska stúlknalandsliðið klárar í dag
Völlurinn sem keppt er á í Kanada er glæsilegur
Sigurbjörn Daði Dagbjartsson
Sigurbjörn Daði Dagbjartsson skrifar
laugardaginn 7. október 2023 kl. 08:30

Íslenska stúlknalandsliðið klárar í dag

Íslenska stúlknalandsliðið í golfi lýkur leik í dag á heimsmeistaramóti stúlknalandsliða, World junior girls championship sem haldið er í Kanada.

Fyrir lokadaginn er Perla Sól Sigurbrandsdóttir í 21-24. sæti á +8, Pamela Ósk Hjaltadóttir er í 63. sæti á + 33 og Helga Signý Pálsdóttir er í 65. sæti á +38.

Helga Signý byrjar kl. 13:20, Pamela kl. 13:30 og Perla Sól kl. 13:40.

Hér er hægt að fylgjast með skorkorti keppenda