John Huh er nýliði ársins á PGA-mótaröðinni
Bandaríkjamaðurinn John Huh er nýliði ársins á PGA-mótaröðinni. Þessi 22ja ára gamli kylfingur á að baki..
Bandaríkjamaðurinn John Huh er nýliði ársins á PGA-mótaröðinni. Þessi 22ja ára gamli kylfingur á að baki gott fyrsta ár á mótaröðinni en hann vann Mayakoba Classic mótið og varð í 28. sæti á tekjulistanum.
Huh var jafnframt eini nýliðinn á mótaröðinni til að vinna sér inn keppnisrétt í Tour Championship mótið en þar taka aðeins 30 efstu kylfingarnir á FedEx-listanum þátt.
Hann hafði betur gegn kylfingunum Charlie Beljan, Jonas Blixt, Bud Cauley og Ted Potter Jr.


