Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Jólagjöf kylfingsins – Batman golfbíll með diskabremsum
Golfbíllinn er óvenjulegur - svo ekki sé meira sagt. Mynd/E-bay.
Miðvikudagur 4. desember 2013 kl. 19:44

Jólagjöf kylfingsins – Batman golfbíll með diskabremsum

Það eru eflaust margir að velta jólagjöfunum fyrir sér þessa dagana og margir kylfingar með eitthvað golftengt á óskalistanum.

Það eru eflaust margir að velta jólagjöfunum fyrir sér þessa dagana og margir kylfingar með eitthvað golftengt á óskalistanum. Það er óvíst að einhver hér á Íslandi nái að koma þessum stórkostlega golfbíl til landsins í tæka tíð fyrir Aðfangadag en hann er falur fyrir rúmlega 2 milljónir kr.

Fyrir aðdáendur ofurhetjunnar Batman þá er eflaust hægt að finna eitthvað sem tengist golfi en er ekki eins stórt í sniðum. Þessi Batmangolfbíll var seldur á uppboðsvefnum E-bay fyrir rétt rúmlega 2 milljónir kr.

Bíllinn er sérsmíðaður og er fyrirmyndin bíll ofurhetjunnar í myndinni Dark Knight. Bíllinn nær 60 km hraða á klst sem er eflaust ólöglegt á flestum golfvöllum. Það eru sex hjólbarðar á undratækinu, diskabremsur, Ipad, glasahaldari og myndir af Batman. Ekki kemur fram hvort það sé rými fyrir tvö golfsett á bílnum sem er eitt af lykilatriðum á golfbílum.