Fréttir

Kim braut pútterinn og notaði 3-tré síðustu holurnar
Si Woo Kim.
Ísak Jasonarson
Ísak Jasonarson skrifar
föstudaginn 9. apríl 2021 kl. 22:25

Kim braut pútterinn og notaði 3-tré síðustu holurnar

Si Woo Kim er í toppbaráttunni eftir tvo hringi á Masters mótinu á 4 höggum undi pari. Þrátt fyrir góða spilamennsku var Kim ansi heitt í hamsi á 15. holunni á öðrum hringnum þegar hann braut pútterinn sinn í reiðiskasti.

Eftir atvikið þurfti Kim að nota aðra kylfu en pútterinn til að pútta og varð 3-tréð fyrir valinu. Kim gekk ágætlega með þá kylfu og tvípúttaði síðustu fjórar holurnar.

Kim mun hefja leik á þriðja keppnisdegi einungis þremur höggum á eftir Justin Rose sem er í forystu.

Hér er hægt að sjá stöðuna í mótinu.