Fréttir

Kjartan bestur á Opna Ölgerðarmótinu
Ísak Jasonarson
Ísak Jasonarson skrifar
þriðjudaginn 11. júní 2019 kl. 08:00

Kjartan bestur á Opna Ölgerðarmótinu

Opna Ölgerðarmótið var haldið í gær, mánudaginn 10.júní, á Korpu við frábærar aðstæður.

Kjartan Sigurjón Kjartansson GR spilaði glæsilegt golf, lék á -1 eða 71 höggi. Hann var á besta skori allra keppenda en skorkort hans má sjá hér fyrir neðan.

Í punktakeppni karla var það Anton Freyr GV sem lenti í fyrsta sæti með 43 punkta og í kvennaflokki var það Ása Margrét GHR sem lenti í fyrsta sæti með 42 punkta.

Veitt voru verðlaun fyrir 3 efstu sætin í punktakeppni í karla- og kvennaflokki, besta skor og nándarverðlaun á öllum par 3 holum vallarins. Leiknar voru lykkjurnar Sjórinn/Áin.

Önnur úrslit úr mótinu voru þessi:

Punktakeppni - karlar

1. Anton Freyr Karlsson GV 43 punktar
2. Smári Freyr Jóhannsson GBR 40 punktar (betri seinni 9)
3. Iouri Zinoviev GR 40 punktar

Punktakeppni – konur

1. Ása Margrét Jónsdóttir GHR 42 punktar (betri á seinni 9)
2. Þórunn Elfa Bjarkadóttir GR 42 punktar
3. Valfríður Möller GR 39 punktar

Besta skor: Kjartan Sigurjón Kjartansson GR 71 högg

Nándarverðlaun

3.braut: Guðjón Frans Halldórsson GKG 1,28 m
6.braut: Jón Kristbjörn Jónsson GR 77 cm
9.braut: Bjarni Sæmundsson GS 2,5 cm
17.braut: Magnús Björn Sveinsson GK 9,56 m