Kjartan Guðjónsson leikari skemmtir Oddverjum
Það eru stórkanónur úr skemmtanalífinu sem munu halda uppi fjörinu á herrakvöldi Golfklúbbsins Odds á föstudagskvöldið. Þeir Kjartan Guðjónsson, leikari og Eyjólfur Kristjánsson, söngvari og tónlistarmaður munu stíga á stokk í golfskálanum, sá fyrri sem ræðumaður kvöldsins og sá síðari mun syngja nokkur lög eins og honum einum er lagið.
Glæsilegur matseðill er í boði að hætti Gumma í Laugaás þar sem sjá má humar í forrétt, limepiparkryddað lambafilet í aðalrétt og oriental ásrtíðu í eftirrétt, svo eitthvað sé nefnt.
Miðasala og pantanir eru á [email protected] eða í s. 565-9092 eða 8221-5401 (Svavar).