Fréttir

Ko í leit að nýjum þjálfara
Lydia Ko.
Miðvikudagur 1. maí 2019 kl. 22:45

Ko í leit að nýjum þjálfara

Fyrrum efsta kona heimslistans, Lydia Ko, er enn á ný í leit að nýjum þjálfara en hún sagði fjölmiðlum að hún hefði nýlega beðið Sean Foley og Chris Mayson að kíkja á sveifluna sína.

Ko og fyrrum þjálfari hennar Ted Oh slitu samstarfi sínu eftir fyrsta risamót ársins, ANA Inspiration. Þau byrjuðu að vinna saman fyrir 2018 tímabilið.

„Við vorum bæði orðin þreytt. Við enduðum þetta á góðum nótum og það verður ekkert óþægilegt að rekast hvort á annað.“

Ko hefur mikið komist í fréttirnar undanfarin ár fyrir það að skipta um þjálfara, kylfubera, kylfuframleiðanda og jafnvel útliti sínu. Hún segist þó lítið spá í hvað aðrir segi og ætli að gefa sér tíma að finna nýjan þjálfara.

„Fólk gerir breytingar en einhvernveginn þá kemst ég alltaf í fréttirnar fyrir það að breyta einhverju. Þetta gerist og ég reyni bara að sleppa því að Google-a sjálfa mig.“

Rúnar Arnórsson
[email protected]