Örninn 2025
Örninn 2025

Fréttir

Koepka búinn að setja tvö met það sem af er móti
Brooks Koepka.
Laugardagur 18. maí 2019 kl. 10:00

Koepka búinn að setja tvö met það sem af er móti

Eins og greint var frá í gær er Brooks Koepka með sjö högga forystu eftir tvo hringi á PGA meistaramótinu. Hann er búinn að leika fyrstu tvo hringi mótsins á 63 (-7) og 65 (-5) höggum og er því samtals á 12 höggum undir pari.

Á fyrsta hringnum setti hann vallarmet þegar hann lék á 63 höggum. Eftir hringinn í gær setti hann svo nýtt met yfir besta skor eftir 36 holur. Hann er því búinn að setja tvö ný met það sem af er móti.

Örninn 2025
Örninn 2025

Fyrir á Koepka metið yfir lægsta höggafjölda í mótinu en það met setti hann í fyrra þegar hann lék hringina fjóra á samtals 264 höggum. Hann er á góðri leið með að bæta það met og gætu metin því hugsanlega orðið fleiri áður en mótið klárast.

Rúnar Arnórsson
[email protected]