Örninn 2025
Örninn 2025

Fréttir

Margir í vandræðum á fyrsta degi Opna bandaríska - frábær hringur hjá JJ Spaun
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
föstudaginn 13. júní 2025 kl. 07:46

Margir í vandræðum á fyrsta degi Opna bandaríska - frábær hringur hjá JJ Spaun

Bandaríkjamaðurinn JJ Spaun er ekki einn af þekktu kylfingunum í heimi atvinnumanna en hefur þó látið til sín taka á árinu en hann jafnaði metið á Opna bandaríska á Oakmont vellinum í gær þegar hann lék fyrsta hringinn á fjórum undir pari, 66 höggum.

Það vissi nánast enginn hver JJ Spaun var fyrr en eftir Players mótið í vor en þá lék hann í bráðabana við Rory Mcilroy um sigurinn og sló bolta sínum í vatnið á 17. holu og tapaði. Núna er hann efsta sæti eftir fyrsta daginn á erfiðasta risamóti ársins. Og aðstæður á Oakmont eru gríðarlega erfiðar og skorið er hátt.

Bestu kylfingar heims, Scottie Scheffler og Rory Mcilroy léku á +3 og +4 á fyrsta hring og voru í vandræðum. Rory lék seinni níu (hans fyrri 9 á vellinum) á 6 yfir pari eftir að hafa leikið fyrri níu á tveimur undir.

Örninn 2025
Örninn 2025

Scheffler náði sér aldrei á strik og hann er sjö höggum á eftir JJ.

Meistari frá fyrri árum, Bruce Koepka er við toppinn á -2 jog Spánverjinn Jon Rahm er á -1 en það verður áhugavert að fylgjast með framhaldinu.

Hér má sjá nokkur skemmtileg myndskeið.

JJ Spaun lék vel en bjargaði sér nokkrum sinnum.

Lengsta dræf ársins hjá Rory kom á 12. holu (hans 3. í mótinu) og var um 360 metrar.

Rory í röffinu.

Shane Lawry var í basli en hér er geggjað högg.

Óþekktur 25 ára Dani, Rasmus Pettersen lék vel á fyrsta hring á sínu öðru risamóti.