Fréttir

Landslið 50 ára og eldri tilkynnt
Guðmundur Arason, Tryggvi Valtýr Traustason og Frans Páll Sigurðsson eru allir í karlaliðinu.
Ísak Jasonarson
Ísak Jasonarson skrifar
þriðjudaginn 20. ágúst 2019 kl. 19:52

Landslið 50 ára og eldri tilkynnt

Dagana 3.-8. september næstkomandi leika karla- og kvennalandslið Íslands skipuð kylfingum 50 ára og eldri á EM liða.

Kvennaliðið leikur í Búlgaríu á meðan karlaliðið leikur í Danmörku.

Samkvæmt reglugerð þá fá fjórir efstu í Öldungamótaröðinni landsliðssæti en afreksstjórar GSÍ valdi tvo karla og tvær konur til viðbótar í landsliðshópana. 

Landslið karla 50 ára og eldri: Tryggvi Valtýr Traustason, Guðmundur Arason, Sigurður Aðalsteinsson, Frans Páll Sigurðsson, Sigurjón Arnarson og Einar Long.

Landslið kvenna 50 ára og eldri: Þórdís Geirsdóttir, María Málfríður Guðnadóttir, Ásgerður Sverrisdóttir, Ragnheiður Sigurðardóttir, Anna Snædís Sigmarsdóttir og Svala Óskarsdóttir.