Fréttir

Lífið leikur við Collin Morikawa
Lífið leikur við Collin Morikawa þessa dagana.
Nökkvi Gunnarsson
Nökkvi Gunnarsson skrifar
föstudaginn 3. desember 2021 kl. 09:48

Lífið leikur við Collin Morikawa

Lífið leikur svo sannarlega við Collin Morikawa þessa dagana. Þessi 24 ára gamli kylfingur hefur þegar sigrað á tveimur risamótum og sigraði á dögunum á DP World Tour Championship  mótinu.

Með sigri á Hero World Challenge mótinu sem hófst í gær kemst hann í fyrsta sinn í efsta sæti heimslistans. Hann lék fyrsta hringinn á fjórum höggum undir pari og er tveimur höggum á eftir efstu mönnum.

Fari svo að hann sigri á mótinu má segja að það verði hans annar sigur í vikunni því hann trúlofaðist unnustu sinni til margra ár, Katherine Zhuu á þriðjudaginn.

Parið kynntist á háskólaárunum í Kaliforníu. Morikawa stundaði nám í University og California en Zhuu lék með liði Pepperdine University í Malibu. Zhuu var mjög frambærilegur kylfingur og hvort sem það er tilviljun eða ekki þá segir Morikawa að hann hafi ekki byrjað að vinna mót fyrr en þau kynntust.