LPGA: Su-Yeon Jang með þriggja högga forystu eftir frábæran hring
Þriðji hringur LOTTE meistaramótsins fór fram í gær, og er það suður-kóreski kylfingurinn Su-Yeon Jang sem er í forystu fyrir lokadaginn.
Fyrir daginn var hún jöfn í efsta sæti ásamt þeim Ariya Jutanugarn og In-Kyung Kim á níu höggum undir pari. Jang átti eftir að leika tvær holur frá öðrum hringnum, en leik var frestað vegna myrkurs á öðrum deginum. Hún lék þær tvær holur á höggi undir pari og var því með eins höggs forystu fyrir þriðja hringinn sem hófst strax í framhaldinu.
Á honum urðu Su-Yeon Jang á engin mistök og fékk hún sjö fugla á hringnum og kom því í hús á 65 höggum, eða sjö höggum undir pari. Hún er því samtals á 17 höggum undir pari fyrir lokadaginn og er með þriggja högga forystu á þær Alena Sharp, en hún lék hringinn í gær einnig á 65 höggum og Cristie Kerr, en hún átti besta hring gærdagsins. Hún lék hringinn á 62 höggum, eða 10 höggum undir pari og lék hún meðal annars síðari níu holurnar á 29 höggum, þar sem hún fékk sjö fugla og tvö pör.
Hér má svo sjá stöðuna í mótinu.
Cristie Kerr átti besta hring gærdagsins.