Fimm fuglar á síðustu 11 holum ekki nóg hjá Haraldi
Haraldur Franklín Magnús fékk fimm fugla á síðustu ellefu holunum og engan skolla á öðrum hring á þriðja móti sínu í S-Afríku í dag - en það dugði þó ekki til að komast í gegnum niðurskurðinn. Það vantaði eitt högg, annað mótið í röð.
Haraldur lék seinni hringinn á fjórum höggum undir pari, 68 höggum með frábæru golfi en fyrri dagurinn var honum kostnaðarsamur en Haddi lék hann á tveimur yfir pari, 74 höggum. Endaði því annað mótið í röð á undir pari en samkeppnin er gríðarlega hörð.


