Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Lunde 115 milljónum ríkari eftir sigur í Kodak Challenge
Mánudagur 24. október 2011 kl. 13:13

Lunde 115 milljónum ríkari eftir sigur í Kodak Challenge

Bandaríski kylfingurinn Bill Lunde sigraði í Kodak Challenge keppninni sem fram fór á PGA-mótaröðinni. Í keppninni er leikin ein hola í hverju móti sem gildir í keppninni og sá kylfingur sem lék á besta skorinu á þessum holum fékk alls eina milljón dollara í verðlaunafé. Í ár lék Lunde best en hann lék alls á 19 höggum undir pari.

Lunde þurfti að fylgjast með keppninni því kylfingarnir Cameron Tringale og Fabian Gomez áttu möguleika á að jafna við Lunde með því að fá örn á lokahringnum. Lunde var því á keppnisstað á lokahringnum ef bráðabana skildi þurfa til að knýja fram úrslit.

Það er svolítið svalt að hugsa til þess að ég hafi fengið þessa fugla og erni þegar ég þurfti á því að halda. Ég er fegin að þetta sé búið og nú þarf ég ekki að hafa áhyggjur af þessum holum. Ég held ég reyni að fá skolla á fyrstu þremur holunum á næsta ári svo ég þurfi ekki að hugsa um þetta aftur,“ sagði Lunde í léttu gríni.

Lokastaðan í Kodak Challenge keppninni