Fréttir

Margmenni á golfdegi í blíðskaparveðri á Vatnahverfisvelli
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
þriðjudaginn 25. júní 2019 kl. 14:14

Margmenni á golfdegi í blíðskaparveðri á Vatnahverfisvelli

Um 60 manns heimsóttu Vatnahverfisvöll við Blönduós á golfdegi PGA, mánudaginn 10. júní, og nutu leiðsagnar fjögurra kennara í PGA golfkennaranámi. Golfdagur PGA var haldinn á fjórum stöðum á landinu að þessu sinni.

,,PGA á Íslandi auglýstu verkefni  golfkennaranema en það snerist um að koma til golfklúbba um allt land og kenna golf. Ég sótti um til PGA , sótti um styrki til fyrirtækja í bænum og dagurinn var afrakstur þessa,“ segir Jóhanna G. Jónasdóttir, formaður Golfklúbbsins Óss á Blönduósi í samtali við kylfing.is.

Golfklúbburinn Ós hefur verið starfræktur frá árinu 1985. Félagar í klúbbnum eru 35 og lítil endurnýjun hefur átt sér stað á síðustu árum. Illa hefur gengið að fá golfkennara út á landsbyggðina en þeir eru bráðnauðsynlegir ef það á að halda úti barna- og unglingastarfi. Golfklúbburinn hefur farið ýmsar leiðist síðustu ár en engin varanleg lausn hefur fundist.  ,,Ég fór á fund framkvæmdastjóra golfklúbba í mars 2017 og var erindi mitt að beina augunum að kennarleysi á landsbyggðinni. Ég var búin að hafa samband við litla golfklúbba um allt land og alls staðar var sama sagan. Agnar Már Jónsson, sem sat fundinn með mér, tók málin í sínar hendur en hann sat í stjórn PGA.  PGA á Íslandi rekur Golfkennaraskólann, sem stendur fyrir faglegu og krefjandi golfkennaranámi,“ segir Jóhanna.

Í samstarfi við Agnar var haldið málþing á föstudegi í maí um stöðu golfkennaramála á landsbyggðinni og boðið upp á leiðbeinendanámskeið á laugardegi og sunnudegi.  Jóhanna sótti leiðbeinendanámskeiðið  og hefur því leyfi til að leiðbeina börnum og unglingum. Síðasta sumar hélt hún úti golfleikjanámskeiði fyrir krakka á aldrinum  6 – 10 ára.  Sumarið 2017 fékk Golfklúbburinn John Garner golfkennara, sem þjálfaði íslenska landsliðið á árum áður, í gegnum golfklúbbinn á Akureyri.  John Garner heimsækir golfklúbbinn enn, þrisvar til fjórum sinnum yfir sumarið og kennir 10 – 15 ára krökkum auk einka- og hópkennslu fyrir fullorðna.

,,Golfdagurinn heppnaðist mjög vel og  voru fjórir nemar á staðnum og við áttum frábæran dag saman.“ Golfkennaranemarnir fóru yfir grunnatriðin í golfi og skiptu svo þátttakendum í nokkra hópa þar sem mismunandi æfingar voru gerðar. Fyrirhugað er að golfkennaranemarnir komi a.m.k tvisvar sinnum til viðbótar í sumar til að halda þátttakendum við efnið. Ég vil hrósa PGA fyrir þetta framtak að sýna landsbyggðinni áhuga.

,,Vonandi er þetta byrjunin á enn frekari  uppbyggingu hjá GÓS og að íbúar í sveitarfélaginu átti sig á hvað þetta er skemmtileg fjölskylduíþrótt, að ég tali nú ekki um  hvað við erum heppin að hafa golfvöll í fallegu umhverfi Vatnahverfis, rétt utan við bæinn, þar sem er aldrei biðröð í rástíma,“ segir Jóhanna að lokum.

Fjölmargir tóku þátt í golfdeginum á Vatnahverfisvelli.

Gripið þarf að vera í lagi.

Guðmundur, Jóhanna formaður, Hallsteinn, Margeir og Ari eftir vel heppnaðan golfdag.