Örninn 2025
Örninn 2025

Fréttir

McIlroy: „Alltaf spennandi að leika með Tiger“
Rory hefur haft margar ástæður til að fagna undanfarið.
Fimmtudagur 20. september 2012 kl. 14:15

McIlroy: „Alltaf spennandi að leika með Tiger“

Tiger Woods og Rory Mcilroy munu leika saman fyrstu tvo hringina á lokamóti FedEx mótaraðarinnar sem hefst í dag...

Tiger Woods og Rory Mcilroy munu leika saman fyrstu tvo hringina á lokamóti FedEx mótaraðarinnar sem hefst í dag en mikið hefur verið talað um samband þeirra tveggja á undanförnu. McIlroy hefur haft betur í harðri keppni við Woods undanfarnar vikur en hann segir að það sé ekki mikill rígur á milli þeirra.

Fólk kemur til mín og spyr mig hvort ég sé að taka stöðu Tiger Woods í golfheiminum,“ sagði McIlroy við fréttamenn á blaðamannafundi sem fram fór í gær. „Það er ekki hægt að bera saman goðsögnina sem Tiger Woods er og 23 ára krakka frá Norður-Írlandi sem kemur til Ameríku og vinnur nokkur mót. Ég hef svo mikla virðingu fyrir öllu sem Woods hefur áorkað í íþróttinni."

Örninn 2025
Örninn 2025

McIlroy segir einnig að hann finni fyrir sérstakri spennu alltaf þegar að hann leikur í sama holli og Woods. „Mér finnst alltaf spennandi að leika með Tiger í holli og ég vona að honum finnist líka gaman að spila með mér.