Fréttir

Meðlimir Golfklúbbs Grindavíkur ætla sér að halda klúbbnum á lífi
Mánudagur 5. febrúar 2024 kl. 17:41

Meðlimir Golfklúbbs Grindavíkur ætla sér að halda klúbbnum á lífi

Formaður Golfklúbbs Grindavíkur, Hávarður Gunnarsson, og framkvæmdastjórinn Helgi Dan Steinsson, birtu skilaboð á Facebook-síðu klúbbsins í gær, sem klúbbmeðlimir hafa tekið afar vel.
Eins og svo margt annað í Grindavík var ákveðin óvissa varðandi framtíð Golfklúbbs Grindavíkur (GG) en segja má að búið sé að eyða þeirri óvissu því greinilegt er að meðlimir GG munu halda tryggð við sinn golfklúbb. Eins og fram kemur í stöðuuppfærslunni hefur golfvöllur Grindvíkinga, Húsatóftavöllur, ekki skemmst neitt að ráði og ekkert til fyrirstöðu að leika völlinn í sumar eins og sakir standa. Meðlimir golfklúbbsins eru auðvitað dreifðir út um allar trissur og því var Helga framkvæmdastjóra falið að hefja viðræður við aðra golfklúbba varðandi samstarf. Nú þegar hafa fjölmargir sýnt vilja á samstarfi við GG. 
Færsla Hávarar og Helga er hér
Ágætu félagsmenn.
Eflaust hafa einhverjir velt því fyrir sér hvað verður um golfklúbbinn okkar eftir þessar hörmungar sem þið íbúar Grindavíkur hafið gengið í gegnum á undanförnum vikum. Það er ekkert því til fyrirstöðu eins og staðan er núna að halda vellinum í rekstri. Hann er lítið skemmdur í raun og veru og við stefnum á að taka á móti gestum í sumar eins og áður. Rekstur klúbbsins hefur gengið ágætlega á undanförnum árum en til þess að svo geti verið áfram verðum við að hafa félagsmenn sem greiða félagsgjöld. Án ykkar er enginn Golfklúbbur Grindavíkur.
Nú er svo komið að enginn býr í Grindavík og því getur reynst erfitt að reka golfklúbb við þessar aðstæður. Stjórn GG fól framkvæmdastjóra að hefja viðræður við aðra golfklúbba um samstarf á komandi sumri og nú þegar hafa fjölmargir sýnt vilja til samstarfs við GG. Enn á eftir að útfæra það samstarf endanlega en í grófum dráttum snýst það um að félagsmenn GG geti leikið á öðrum golfvöllum fyrir sanngjarnt verð sumarið 2024. Frekari upplýsingar um það verða ljósar á aðalfundi sem áætlaður er í mars og þar verður einnig tekin ákvörðun um félagsgjöld GG fyrir golfsumarið sem framundan er.
Við verðum í sambandi síðar með aðalfundarboð en hlökkum til að sjá ykkur öll sem fyrst á Húsatóftavelli.
Áfram Grindavík
Áfram GG
Kveðja,
Helgi Dan og Hávarður
Helgi gegnir líka stöðu vallarstjóra Húsatóftavallar.
Hávarður er hörkugóður kylfingur, hér eftir að hafa náð draumahögginu.