Fréttir

Meira áhorf á PNC mótið en Opna mótið í sumar
Tiger og Charlie Woods á PNC mótinu.
Nökkvi Gunnarsson
Nökkvi Gunnarsson skrifar
fimmtudaginn 23. desember 2021 kl. 09:13

Meira áhorf á PNC mótið en Opna mótið í sumar

Daly feðgar unnu frábæran sigur á hinu stórskemmtilega PNC fjölskyldumóti sem lauk í Orlando síðasta sunnudag.

Mótið var frábær skemmtun og vakti sérstaka athygli þetta árið vegna endurkomu Tiger Woods á golfvöllinn. Tiger og sonur hans Charlie léku frábært golf á mótinu og enduðu að lokum í öðru sæti.

NBC sjónvarpsstöðin hefur birt áhugaverða tölfræði frá mótinu en 2,3 milljónir manna horfðu á mótið í beinni útsendingu í Bandaríkjunum. Það eru 200 þúsund fleiri áhorfendur en á Opna mótið á Royal St. Georges í sumar.

Aðdráttarafl Tiger Woods hefur greinilega ekkert minnkað þrátt fyrir hækkandi aldur og langa fjarveru vegna meiðsla.