Meiri líkur á að fara tíu sinnum holu í höggi
Þorbergur Aðalsteinsson er, var og verður líklega alltaf þekktari fyrir afrek sín í handbolta en í golfi. Þorbergur var mjög góður handboltamaður, lék með Víkingi hér á landi, átti farsælan atvinnumannferil og lék með landsliði Íslands. Síðar meir gerðist hann landsliðsþjálfari og á sömuleiðis farsælan feril þar að baki. Hann byrjaði í golfi eftir að handboltaferlinum lauk, náði að eigin sögn aldrei almennilegum tökum á golfíþróttinni og komist lægst niður í 20 í forgjöf en hann þurfti að leggja kylfunum fyrir sex árum eftir að hann lenti í bílsslysi. Á sínum stutta golfferli, náði hann samt að upplifa eitthvað sem ekki margir upplifa.
Þorbergur var að spila í móti á Flúðum og rifjaði atvikið upp. „ Þetta var á 17. brautinni sem er par fimm. Ég missti upphafshöggið aðeins til hægri en var í fínum málum og boltinn lá vel. Ég tók upp þrjú tréið, hitti boltann mjög vel og hann fór á gott flug en þegar hann var kominn u.þ.b. 100 metra á flugi datt hann steindauður niður! Ég spurði hina í hollinu hvað hefði eiginlega gerst. Það kom hávaði og eldglæringar og þegar við komum að þeim stað sem við töldum boltann hafa dottið niður, lá hann þar í tveimur hlutum. Það var hreinlega eins og boltinn hafi lent á ósýnilegum vegg eða verið skotinn með byssu, hann var í skralli. Við skyldum náttúrulega ekkert í þessu, ég man ekki einu sinni hvernig við brugðumst við þessu, hvort ég tók víti eða hvað og eftir hringinn ræddum við þetta inni í skála við fólk sem þekkir til á vellinum. Það sem að öllum líkindum gerðist, einhver hafði verið að slá upphafshögg á 15. brautinni, boltarnir okkar mættust í háloftunum og fóru báðir í small!
Ég fór aldrei holu í höggi en tel mun meiri líkur á að ég hefði náð því tíu sinnum, áður en ég myndi ná að upplifa þetta á golfvellinum. Það er alltaf hægt að grísa á eitt högg en að tveir golfboltar hittist í háloftunum, er frekar ótrúlegt,“ sagði Þorbergur.


