Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Metár hjá Leyni – yfir þúsund félagar og 15 milljóna hagnaður
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
föstudaginn 27. nóvember 2026 kl. 09:15

Metár hjá Leyni – yfir þúsund félagar og 15 milljóna hagnaður

Mikill uppgangur er hjá Golfklúbbnum Leyni á Akranesi. Félögum fjölgaði um 13% á árinu og eru þeir nú orðnir 1.053. Aldrei hafa fleiri golfhringir verið leiknir á Garðavelli en í ár og var rekstrarafgangur klúbbsins rúmar 15 milljónir króna. Þetta kom fram á aðalfundi Leynis sem haldinn var á miðvikudagskvöld.

Alls voru skráðir 27.280 golfhringir á Garðavelli á árinu sem er nýtt met. Þá var metþátttaka á meistaramóti klúbbsins þar sem 200 kylfingar voru meðal keppenda. Af 1.053 skráðum félögum klúbbsins eru 120 iðkendur sem æfðu án endurgjalds.

Rekstrartekjur Leynis námu 233,7 milljónum króna og jukust um 12,2% milli ára. Rekstrarafgangur að teknu tilliti til afskrifta og fjármagnsliða nam rúmum 15 milljónum króna.

Langtímaskuldir klúbbsins nema 58,3 milljónum króna, þar af 42,8 milljónum við Akraneskaupstað. Klúbburinn tók nýtt lán hjá Landsbankanum á árinu vegna framkvæmda á Garðavelli og endurfjármögnunar eldri skulda.

Elsa Maren kylfingur ársins

Elsa Maren Steinarsdóttir var útnefnd kylfingur ársins hjá Leyni og hlaut einnig Guðmundar- og Óðinsbikarinn. Elsa Maren hafnaði í öðru sæti á Íslandsmótinu í golfi í sumar og hlaut Guðfinnubikarinn fyrir besta árangur áhugakylfinga í kvennaflokki.

Faðir hennar, Steinar Berg Sævarsson, tók við viðurkenningunum fyrir hennar hönd en Elsa Maren er stödd í æfingaferð með íslenskum landsliðskylfingum í Flórída.

Stefán Indriði Ragnarsson hlaut Háttvísisbikar GSÍ.

Félagafjöldinn tvöfaldast á sjö árum

Hróðmar Halldórsson var sjálfkjörinn formaður Leynis til eins árs og engar breytingar urðu á stjórn klúbbsins.

Á fundinum var Rakel Óskarsdóttir kvödd eftir sjö ára starf sem framkvæmdastjóri Leynis. Mikill vöxtur hefur orðið hjá klúbbnum á starfstíma hennar. Félögum hefur fjölgað úr rúmlega 500 í yfir eitt þúsund og rekstrartekjur hafa meira en tvöfaldast, úr rúmum 103 milljónum króna árið 2019 í tæpar 234 milljónir króna í ár.

Viktor Elvar Viktorsson, fyrrverandi formaður Leynis, hefur tekið við starfi framkvæmdastjóra eins og greint var frá á Kylfingi á dögunum.