Metfjölgun kylfinga á Íslandi – rúmlega 33.600 skráðir í golfklúbba
Golfíþróttin heldur áfram að vaxa með miklum hraða á Íslandi. Skráðum kylfingum fjölgaði um 4.227 á milli áranna 2025 og 2026, eða um 14,4%. Þetta er mesta fjölgun milli ára frá upphafi skráninga. Alls eru nú tæplega 33.600 kylfingar skráðir í golfklúbba landsins, samkvæmt ársskýrslu Golfsambands Íslands fyrir árið 2026.
Vöxtur golfíþróttarinnar hefur verið sérstaklega mikill á síðustu árum. Árið 2000 voru skráðir kylfingar á Íslandi um 8.500 talsins en árið 2026 eru þeir orðnir 33.597. Fjöldinn hefur því nær fjórfaldast á 26 árum og aukist um rúmlega 25 þúsund, eða 295%.
Árið 2021 fór fjöldi skráðra kylfinga í fyrsta sinn yfir 20 þúsund en aðeins fimm árum síðar er hann kominn yfir 30 þúsund. Frá árinu 2020 hefur skráðum kylfingum fjölgað um tæplega 14 þúsund, eða 69%.
Konur þriðjungur kylfinga
Samkvæmt ársskýrslunni eru konur 33% skráðra kylfinga á Íslandi en karlar 67%. Meðalaldur kvenna er 53 ár en karla 47 ár.
Þá eru börn og unglingar 18 ára og yngri um 15% skráðra kylfinga hér á landi. Það er hæsta hlutfall í Evrópu.
Áhugaverður munur kemur fram í forgjöf kynjanna. Meðalforgjöf kvenna er 38,5 en meðalforgjöf karla 28,6.
Um 900 þúsund golfhringir á ári
Umsvif golfíþróttarinnar eru orðin veruleg. Alls eru 63 golfklúbbar starfandi á Íslandi og fjöldi golfhola er 780. Athafnasvæði golfklúbbanna nær yfir um 23 ferkílómetra lands.
Áætlað er að kylfingar leiki samtals um 900 þúsund golfhringi á ári. Þar af eru um 590 þúsund bókaðir rástímar og 270 þúsund forgjafarhringir.
Þá eru haldin um 1.400 golfmót á Íslandi árlega.
Flestir kylfingar á aldrinum 50 til 69 ára
Aldurssamsetning kylfinga sýnir að golfið er sérstaklega vinsælt meðal fólks á miðjum aldri og eldra fólks.
Fjölmennasti aldurshópurinn er 60–69 ára, með rúmlega sex þúsund skráða kylfinga, en fast á hæla hans kemur aldurshópurinn 50–59 ára með um sex þúsund kylfinga.
Á sama tíma sýna tölurnar að yngri kynslóðirnar eru einnig fjölmennar í golfíþróttinni og að börn og unglingar skipa stóran sess í starfsemi golfklúbbanna.



