Fréttir

Myndband: Aftur setti Noren niður langa púttið á Le Golf National
Alex Noren.
Ísak Jasonarson
Ísak Jasonarson skrifar
miðvikudaginn 16. október 2019 kl. 22:24

Myndband: Aftur setti Noren niður langa púttið á Le Golf National

Um helgina fer Opna franska mótið fram á Evrópumótaröð karla en leikið er á Le Golf National vellinum í Frakklandi þar sem Ryder bikarinn fór fram árið 2018. 

Alex Noren á eitt eftirminnilegasta högg mótsins en í lokaleiknum á sunnudeginum setti hann niður magnað pútt á 18. holu til þess að vinna Bryson DeChambeau.

Nú, rúmu ári seinna, ákvað Noren að reyna við sama pútt á 18. holunni og viti menn, púttið rataði beint í holu.

Myndband af púttinu frá því í dag, ásamt púttinu í Ryder bikarnum, má sjá hér fyrir neðan.