Fréttir

Myndband: Hvernig endaði þetta högg ekki ofan í?
Tiger Woods. Mynd: golfsupport.nl.
Ísak Jasonarson
Ísak Jasonarson skrifar
sunnudaginn 26. janúar 2020 kl. 20:50

Myndband: Hvernig endaði þetta högg ekki ofan í?

Lokahringur Farmers Insurance Open mótsins á PGA mótaröðinni er nú í fullu fjöri. Ástralinn Marc Leishman er í forystu en kylfingar á borð við Jon Rahm, Rory McIlroy og Tiger Woods eru einnig í toppbaráttunni.

Woods átti einmitt eitt besta högg dagsins þegar hann sló innáhöggið sitt á 2. holu ofan í holu og aftur upp.

Bolti Woods stoppaði örstutt í holunni áður en spuninn á honum gerði það að verkum að hann fór aftur upp. Nick Faldo, sem lýsir mótinu á Golf Channel trúði ekki sínum eigin augum og sagðist ekki hafa séð annað eins.

Hér er hægt að sjá stöðuna í mótinu.