Fréttir

Myndband: Langt og erfitt ár framundan hjá Reed?
Patrick Reed.
Rúnar Arnórsson
Rúnar Arnórsson skrifar
þriðjudaginn 7. janúar 2020 kl. 14:00

Myndband: Langt og erfitt ár framundan hjá Reed?

Ef sunnudagurinn á Sentry Tournament of Champions mótinu er einhver fyrirboði þá er ljóst að árið verður langt og erfitt fyrir Patrick Reed og kylfubera hans Kessler Karain.

Reed var í umspili um sigurinn í gær með þeim Xander Schauffele og Justin Thomas. Schauffele var fallinn úr leik og átti Reed möguleika á að setja pressu á Thomas með því að setja fuglapúttið sitt í. Reed, sem hefur verið þekktur fyrir að vera góður að pútta, brást bogalistinn að þessu sinni.

Það væri svo sem ekki frásögu færandi nema fyrir þær sakir að í miðju pútti heyrðist einn áhorfandi kalla „svindlari!" en Reed hefur reglulega verið sakaður um að svindla, nú síðast fyrir að laga stöðu sína í glompu á Hero World Challenge mótinu.