Fréttir

Myndband: Reed fékk tvö högg í víti fyrir þetta
Mynd: PGATour.
Ísak Jasonarson
Ísak Jasonarson skrifar
föstudaginn 6. desember 2019 kl. 21:48

Myndband: Reed fékk tvö högg í víti fyrir þetta

Bandaríkjamaðurinn Patrick Reed fékk tvö högg í víti á þriðja keppnisdegi Hero World Challenge á PGA mótaröðinni fyrir að bæta stöðu sína í sandi á 11. holu.

Reed, sem var í forystu eftir tvo daga, stillti kylfunni upp fyrir aftan boltann og tók sand upp með henni tvívegis. Reed var ekki í eiginlegri glompu og því mátti hann snerta sandinn en þó ekki jafn ýkt og hann gerði.

Dómarar mótsins fengu að skoða myndband af atvikinu og komust að þeirri niðurstöðu að hann hefði viljandi bætt stöðu sína í sandinum og niðurstaðan því tvö högg í víti.

Fyrir vítin var Reed í 2. sæti mótsins á 12 höggum undir pari en hann fellur niður í 6. sæti eftir dóminn.

Gary Woodland er í forystu í mótinu. Hér er hægt að lesa um stöðu efstu manna.