Fréttir

Myndband: Sjáðu fuglinn sem gulltryggði DeChambeau sigurinn
Bryson DeChambeau. Mynd: golfsupport.nl
Ísak Jasonarson
Ísak Jasonarson skrifar
sunnudaginn 5. júlí 2020 kl. 22:10

Myndband: Sjáðu fuglinn sem gulltryggði DeChambeau sigurinn

Bryson DeChambeau fagnaði í dag sínum sjötta sigri á PGA mótaröðinni þegar hann sigraði á Rocket Mortgage Classic mótinu.

DeChambeau lék hringina fjóra á 23 höggum undir pari en hann hefur verið í frábæru formi undanfarnar vikur.

Fyrir lokaholuna var Matt Wolff búinn að minnka forystu DeChambeau í tvö högg og því enn smá möguleiki að Wolff næði að koma sér í bráðabana.

DeChambeau lék hins vegar 18. holuna fullkomlega, átti lengsta dræv dagsins, sló 80 metra högg um metra frá flagginu og púttaði í miðja holu.

Með sigrinum færðist DeChambeau upp í 4. sæti stigalistans en þetta var fyrsti sigur Bandaríkjamannsins á þessu ári.