Fréttir

Myndband: Sjáðu magnað vipp hjá Woodland á 17. flöt Pebble Beach
Gary Woodland.
Ísak Jasonarson
Ísak Jasonarson skrifar
þriðjudaginn 18. júní 2019 kl. 12:32

Myndband: Sjáðu magnað vipp hjá Woodland á 17. flöt Pebble Beach

Gary Woodland sigraði á Opna bandaríska mótinu um helgina sem fór fram á Pebble Beach vellinum í Kaliforníu.

Woodland háði harða baráttu gegn köppum á borð við Justin Rose og Brooks Koepka á lokasprettinum en hafði að lokum betur og fagnaði þriggja högga sigri.

Þegar Woodland var kominn á 17. holu var útlit fyrir að Koepka myndi minnka forystu Woodland niður í eitt högg og ekki var staðan betri hjá Woodland þegar hann missti innáhögg sitt á holunni töluvert hægra megin við holuna.

Woodland stóð þá frammi fyrir því að þurfa að vippa af flötinni til þess að eiga möguleika á að komast nálægt holunni. Bandaríkjamaðurinn framkvæmdi höggið nánast fullkomlega og mátti sjá Rose fagna högginu með honum.

Woodland fékk á endanum fugl á 18. holu og fagnaði sínum fyrsta sigri á risamóti.