Fréttir

Nordic Golf: Guðmundur og Haraldur í 14. sæti í Svíþjóð
Guðmundur Ágúst Kristjánsson.
Laugardagur 9. júní 2018 kl. 07:00

Nordic Golf: Guðmundur og Haraldur í 14. sæti í Svíþjóð

Atvinnukylfingarnir Haraldur Franklín Magnús og Guðmundur Ágúst Kristjánsson eru jafnir í 14. sæti eftir fyrsta hringinn á PGA Championship mótinu sem fram fer á Österlens golfvellinum í Svíþjóð á Nordic Golf mótaröðinni.

Mótið hófst á föstudaginn og lýkur á sunnudaginn en leiknar eru 54 holur í mótinu.

Íslensku kylfingarnir léku báðir á 2 höggum undir pari á fyrsta hringnum og eru sem fyrr segir í 14. sæti. Alls leika 156 kylfingar í mótinu og komast einungis 45 efstu keppendurnir áfram að tveimur hringjum loknum.

Hér er hægt að sjá stöðuna í mótinu.


Haraldur Franklín Magnús.

Ísak Jasonarson
[email protected]