Oddur styrkir ABC og hvetur aðra klúbba til að gera slíkt hið sama
Á erfiðum tímum er aldrei mikilvægara en að hjálpa þeim sem varla hafa til hnífs né skeiðar. Í gær var kynnt ný mótaröð, ABC-mótaröðin, en þar fá þeir kylfingar sem ekki eiga möguleika á að keppa á Kaupþingsmótaröðinni, tækifæri á að spreyta sig á alvöru mótaröð. Auk þess sem kylfingum gefst tækifæri á að spreyta sig gegn kylfingum í sínum forgjafarflokki, þá er mótaröðin einnig í samstarf við ABC-barnahjálp, og mun 500 krónur af hverju keppnisgjaldi renna til styrktar fátækra barna í þróunarlöndum.
Hjörtur Fr. Vigfússon, framkvæmdastjóri GO, reið á vaðið í kjölfarið og kynnti að GO hygðist styrkja ABC-barnahjálp um 10 þús. krónur og hvetur aðra golfklúbba og fyrirtæki á að gera slíkt hið sama.
Þeir klúbbar sem hyggjast fylgja að fordæmi GO er bent á að hafa samband við Guðrúnu Margéti Pálsdóttur með tölvuskeyti á [email protected].
Sjá heimasíðu ABC
Mynd/Kylfingur.is: Hjörtur Fr. Vigfússon afhenti Guðrúnu Margréti Pálsdóttur, formanni ABC-barnahjálpar, 10 þús. krónur í kjölfar þess að ABC-mótaröðin var sett á laggirnar í gær.


