Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Ólafía Þórunn er Íþróttamaður ársins 2017
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir.
Fimmtudagur 28. desember 2017 kl. 20:26

Ólafía Þórunn er Íþróttamaður ársins 2017

Atvinnukylfingurinn Ólafía Þórunn Kristinsdóttir var í kvöld kjörin Íþróttamaður ársins 2017 en niðurstöður úr kosningu Samtaka íþróttafréttamanna voru tilkynntar við hátíðlega athöfn í Hörpu.

Þetta er í fyrsta skiptið sem Ólafía Þórunn hlýtur sæmdarheitið Íþróttamaður ársins og í fyrsta sinn sem kylfingur hlýtur sæmdarheitið.

Ólafía Þórunn endaði í þriðja sæti í kjörinu um íþróttamann ársins í fyrra eftir að hafa tryggt sér þátttökurétt á LPGA mótaröðinni fyrst allra íslenskra kylfinga. Í ár hefur hún spilað á LPGA mótaröðinni af fullum krafti og var besti árangur hennar á árinu fjórða sætið á Indy Women in Tech Championship. Ólafía var einnig kjörin íþróttakona Reykjavíkur á dögunum.

Lið ársins var karlalandsliðið í fótbolta sem tryggði sér þátttökurétt á HM og þjálfari ársins var Heimir Hallgrímsson, þjálfari íslenska karlalandsliðsins.

Íþróttamaður ársins 1956-2017:
    
1956    Vilhjálmur Einarsson
1957    Vilhjálmur Einarsson (2)
1958    Vilhjálmur Einarsson (3)
1959    Valbjörn Þorláksson
1960    Vilhjálmur Einarsson (4)
1961    Vilhjálmur Einarsson (5)
1962    Guðmundur Gíslason
1963    Jón Þ. Ólafsson
1964    Sigríður Sigurðardóttir
1965    Valbjörn Þorláksson
1966    Kolbeinn Pálsson
1967    Guðmundur Hermannsson
1968    Geir Hallsteinsson
1969    Guðmundur Gíslason (2)
1970    Erlendur Valdimarsson
1971    Hjalti Einarsson
1972    Guðjón Guðmundsson
1973    Guðni Kjartansson
1974    Ásgeir Sigurvinsson
1975    Jóhannes Eðvaldsson
1976    Hreinn Halldórsson
1977    Hreinn Halldórsson (2)
1978    Skúli Óskarsson
1979    Hreinn Halldórsson (3)
1980    Skúli Óskarsson (2)
1981    Jón Páll Sigmarsson
1982    Óskar Jakobsson
1983    Einar Vilhjálmsson
1984    Ásgeir Sigurvinsson (2)
1985    Einar Vilhjálmsson (2)
1986    Eðvarð Þór Eðvarðsson
1987    Arnór Guðjohnsen
1988    Einar Vilhjálmsson (3)
1989    Alfreð Gíslason
1990    Bjarni Friðriksson
1991    Ragnheiður Runólfsdóttir
1992    Sigurður Einarsson
1993    Sigurbjörn Bárðarson
1994    Magnús Scheving
1995    Jón Arnar Magnússon
1996    Jón Arnar Magnússon (2)
1997    Geir Sveinsson
1998    Örn Arnarson
1999    Örn Arnarson (2)
2000    Vala Flosadóttir
2001    Örn Arnarson (3)
2002    Ólafur Stefánsson
2003    Ólafur Stefánsson (2)
2004    Eiður Smári Guðjohnsen
2005    Eiður Smári Guðjohnsen (2)
2006    Guðjón Valur Sigurðsson
2007    Margrét Lára Viðarsdóttir
2008    Ólafur Stefánsson (3)
2009    Ólafur Stefánsson (4)
2010    Alexander Petersson
2011    Heiðar Helguson
2012    Aron Pálmarsson
2013    Gylfi Þór Sigurðsson
2014    Jón Arnór Stefánsson
2015    Eygló Ósk Gústafsdóttir
2016    Gylfi Þór Sigurðsson (2)
2017   Ólafía Þórunn Kristinsdóttir

Ísak Jasonarson
[email protected]