Fréttir

Örlygur Helgi og Katrín klúbbmeistarar GV 2022
Örlygur Helgi Grímsson varð klúbbmeistari GV í 15. sinn. Ljósmynd: GV
Ólafur Pálsson
Ólafur Pálsson skrifar
fimmtudaginn 14. júlí 2022 kl. 17:40

Örlygur Helgi og Katrín klúbbmeistarar GV 2022

Örlygur Helgi vann sinn 15. klúbbmeistaratitil

Örlygur Helgi Grímsson og Katrín Harðardóttir eru klúbbmeistarar GV 2022.

Örlygur Helgi lék hringina fjóra á 291 höggi (73-72-72-74) eða samtals á 11 höggum yfir pari Vestmannaeyjavallar, ellefu höggum betur en Lárus Garðar Long. Daníel Ingi Sigurjónsson varð þriðji, tveimur höggum á eftir Lárusi Garðari.

Katrín lék hringina fjóra á 356 höggum (88-86-86-96) eða samtals á 76 höggum yfir pari vallarins. Hrönn Harðardóttir hafnaði í öðru sæti og Sara Jóhannsdóttir í þriðja sæti.

Örlygur Helgi varð klúbbmeistari GV í 15. sinn í ár.

Lokastaðan á mótinu

Katrín Harðardóttir, klúbbmeistari GV, ásamt þeim Söru Jóhannsdóttur og Hrönn Harðardóttur: Ljósmynd: GV