Ótrúlegur lokakafli tryggði JJ Spaun sigur á Opna bandaríska
Þegar Bandaríkjamaðurinn JJ Spaun tapaði í bráðbana gegn Rory Mcilroy í vor var hann óþekktur kylfingur á PGA mótaröðinni þó hann hafi unnið eitt mót 2022. Nú er hann bandarískur meistari eftir ótrúlegan sigur á US Open á Oakmont vellinum í gær en aðstæður voru gríðarlega erfiðar og Spaun var eini kylfingurinn af 155 þátttakendum sem endaði undir pari og það -1.
Spaun var höggi frá efsta sæti fyrir lokahringinn. Hann fékk fimm skolla á fyrstu sex holunum þannig að það bent fátt til þess að hann væri að fara að lyfta þessum fallega bandaríska bikar. En á seinni níu holunum fór hann í gang og fékk fjóra fugla á síðustu sjö holunum, þar af á 17. og 18. Á lokaflötinni var hann rúma tuttugu metra frá holunni og þurfti tvípútt til að tryggja sér sigur, var höggi á undan Skotanum Bob Mcintyre. Hann setti púttið í holu og fagnaði með stæl.
JJ Spaun hafði fyrir þetta mót sigrað einu sinni á PGA mótaröðinni, í Texas árið 2022. Hann hafði nokkrum sinnum komist í stöðu til að vinna en hafði alltaf mistekist. Frammistaða hans á Players mótinu í vor sýndi þó að hann var til alls líklegur en fyrir ekki löngu síðar hugsaði hann um að leggja keppniskylfurnar á hilluna og hugsaði um að komast að sem golfkennari á einhverjum golfvelli. Hann þraukaði og nú er hann risameistari.
Skotinn Bob Mcintyre hefur sigrað einu sinni á PGA mótaröðinni. Hann lék ellefu síðustu brautirnar á þremur undir pari og var efstur um tíma þangað til JJ Spaun jafnaði við hann á 14. holu og kláraði svo málið með tveimur fuglum í lokin á 17. og 18.
Það var skrýtið að sjá lokaráshópinn berjast í lokahringnum. Þeir Sam Burns og Adam Scott léku á 78 og 79 höggum og voru í miklu basli.
JJ Spaun var á allt öðrum nótum og nú er líklegt að næsti draumur hans verði að veruleika, að hann verði einn af liðsmönnum Bandaríkjamanna í Ryder bikarnum í haust.
JJ setti niður um 13 metra pútt á 14. flöt.
RESPAUN!pic.twitter.com/DBhwar8TLC
— PGA TOUR (@PGATOUR) June 15, 2025
Upphafshöggið hjá JJ á 17. holu skilaði fugli og forystu.
"The best shot of his life."pic.twitter.com/gE0NFlh32B
— PGA TOUR (@PGATOUR) June 15, 2025
Lokapúttið hjá JJ af 21 metra færi, beint í holu.
J.J. SPAUN IS A MAJOR CHAMPION!!pic.twitter.com/WgwNNHl5dy