Pétur Már fór holu í höggi!
Pétur Már Sigurðsson náði draumahöggi allra kylfinga á Hamarsvelli í Borgarnesi í gær. Hann fór holu í höggi á 2. braut vallarins. Hann notaði 8-járn til verksins. Í holli með Pétri Má í gær voru: Guðmundur Eiríksson, formaður Golfklúbbs Borgarness og Hans Egilsson ritari klúbbsins. Við óskum Pétri til hamingju með draumahöggið.
Mynd: Pétur Már nær hér í boltann sinn með bros á vör eftir að hafa farið holu í höggi á 2. braut á Hamarsvelli.


