Fréttir

PGA: DeChambeau sigraði á Rocket Mortgage Classic
Bryson DeChambeau.
Ísak Jasonarson
Ísak Jasonarson skrifar
sunnudaginn 5. júlí 2020 kl. 21:42

PGA: DeChambeau sigraði á Rocket Mortgage Classic

Bandaríkjamaðurinn Bryson DeChambeau sigraði í dag á Rocket Mortgage Classic mótinu sem fór fram á PGA mótaröðinni í golfi.

DeChambeau lék lokahring mótsins á 7 höggum undir pari og endaði á samtals 23 höggum undir pari í mótinu.

Þetta er fyrsti sigur DeChambeau á PGA mótaröðinni frá því í nóvember 2018 en hann hefur verið í miklu stuði eftir Covid-19 pásuna og endað í topp-10 í öllum fjórum mótunum.

Matt Wolff, sem leiddi eftir þrjá daga, lék lokahringinn á höggi undir pari sem dugði einfaldlega ekki til að halda í við DeChambeau.

DeChambeau er nú kominn með sex sigra á PGA mótaröðinni og var áætlað að hann færi upp í 4. sætið á stigalistanum eftir sigur helgarinnar.

Úrslit mótsins:

1. Bryson DeChambeau, -23
2. Matt Wolff, -20
3. Kevin Kisner, -18
5. Ryan Armour, -16
5. Danny Willett, -16
5. Adam Hadwin, -16
5. Tyrrell Hatton, -16

Smelltu hér til að sjá lokastöðuna í mótinu.