Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

PGA-mótaröðin safnaði $108 milljónum til góðgerðarmála
Þriðjudagur 26. janúar 2010 kl. 09:23

PGA-mótaröðin safnaði $108 milljónum til góðgerðarmála

Bandaríska PGA-mótaröðin safnaði alls um 108 milljónum dollara til góðgerðamála á síðasta ári en þetta var tilkynnt af mótaröðinni í gær. Upphæðinni var safnað í gegnum mót á öllum mótaröðum PGA-mótaraðarinnar, á Champions mótaröðinni og einnig á Nationwide mótaröðinni.

Nú stefnir mótaröðin að færa út kvíarnar í takt við nýja herferð sem ber yfirskriftina „Saman er allt mögulegt“ eins og það myndi hljóma á ensku. Í heild hefur mótaröðin safnað um 1.5 milljarði dala til góðgerða mála í gegnum tíðina.

Hér að neðan má sjá myndbrot með kylfingum mótaraðarinnar um mikilvægi herferðarinnar.

Mynd/pgatour.com
[email protected]