Kiðjaberg Gull 24
Kiðjaberg Gull 24

Fréttir

Ragga tíunda í Tékklandi
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
mánudaginn 16. júní 2025 kl. 07:03

Ragga tíunda í Tékklandi

Ragnhildur Kristinsdóttir endaði í 10. sæti á móti á LET Access mótaröðinni, þeirri næst sterkustu í Evrópu, en leikið var á Panorama golfsvæðinu í Tékklandi um síðustu helgi.

Ragga lék hringina þrjá á 72-72-76 höggum en sigurvegarinn, hin franska Alice Kong var fimm höggum betri en hún hafði betur í bráðabana við þrjár aðrar.

Ragnhildur er eftir þetta mót í 31. sæti stigalistans en Andrea Bergsdóttir er í 10. sæti en hún var ekki meðal keppenda í mótinu í Tékklandi.

Örninn 2025
Örninn 2025