Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Veigar komst áfram í Írlandi en datt út í 64 manna úrslitum
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
sunnudaginn 26. júlí 2026 kl. 23:47

Veigar komst áfram í Írlandi en datt út í 64 manna úrslitum

Veigar Heiðarsson úr Golfklúbbi Akureyrar datt úr í 64 manna úrslitum á South of Ireland Men’s Amateur Open Championship á Írlandi. Veigar tapaði fyrir Íranum David Kitt 2/1.

Veigar lék á tveimur undir pari, 67-75 höggum, eftir 36 holu höggleik og endaði í 42.-54. sæti. Leikinn var höggleikur á miðvikudegi og fimmtudegi og að honum loknum komust 64 efstu kylfingarnir af 150 þátttakendum áfram þar sem leikin var holukeppni.

Þetta mót er eitt stærsta áhugamannamót Írlands og saga þess nær alla leið aftur til ársins 1895. Keppendahópurinn var afar sterkur og í honum eru t.d. sex kylfingar sem eru á meðal 100 efstu á heimslista áhugamanna.