Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Hulda nálægt því að komast á Opna breska
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
þriðjudaginn 28. júlí 2026 kl. 10:18

Hulda nálægt því að komast á Opna breska

Hulda Gestsdóttir reyndi fyrir sér á lokaúrtökumóti fyrir AIG Women’s Open sem fram fór á St Annes Old Links vellinum í Englandi í gær, mánudag fyrir risamótið sem verður á Royal Lytham vellinum. Hulda var þremur höggum frá því að komast í bráðabana um sæti á mótinu.

Hulda lék 18 holurnar á einu höggi yfir pari, 73 höggum. Hún endaði jöfn í 43. sæti en þrettán sæti voru í boði og var Hulda þremur höggum frá því að komast í bráðabana um sæti.

Hulda sagði í stuttu spjalli við kylfing.is að hún hafi leikið vel í krefjandi aðstæðum á St Annes Old Links vellinum en hann er nágranni Royal Lytham vallarins.

Hún er ekki skráð í Íslandsmótið á Korpu í byrjun ágúst og ætlar að einbeita sér að LETAS mótaröðinni, sem er sú næst sterkasta í Evrópu. Hulda er kominn til Dublinar þar sem næsta mót verður í þessari viku og svo keppir hún í Danmörku þegar Íslandsmótið fer fram.