Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Ríkharður Hrafnkelsson lék best á N1 Open
2. holan á Öndverðarnesvelli
Mánudagur 13. júní 2016 kl. 14:00

Ríkharður Hrafnkelsson lék best á N1 Open

Rúmlega 50 kylfingar léku á N1 mótinu í Öndverðarnesi á laugardaginn við erfiðar aðstæður en mikill vindur var á svæðinu. Flatirnar á vellinum koma virkilega vel undan vetri en þó er kal á nokkrum brautum.

Ríkharður Hrafnkelsson átti besta hring mótsins en hann lék á 2 höggum yfir pari. Hann vann einnig punktakeppnina með 43 punkta. Hann gat þó ekki tekið við báðum verðlaunum samkvæmt keppnisskilmálum og því sigraði Hildur Rún Guðjónsdóttir í punktakeppninni með 40 punkta.

Helstu úrslit í mótinu voru eftirfarandi:

Höggleikur:

1 Ríkharður Hrafnkelsson, GMS 73 +2
2 Hildur Rún Guðjónsdóttir, GK 74 +3
3 Þórir Baldvin Björgvinsson, GÖ 75 +4

Punktakeppni:

1 Ríkharður Hrafnkelsson, GMS 43 punktar
2 Hildur Rún Guðjónsdóttir, GK 40 punktar
3 Daði Granz, GK 39 punktar