Ronaldo í golfkennslu - Sigurbjörn „papparassaði“ sveifluna
Cristiano Ronaldo (CR7) kann að vera einn besti knattspyrnumaður sögunnar en hann er langt frá því að vera besti kylfingur heims. Fjórir íslenskir öldungakylfingar sáu kappann á æfingasvæði við Oitavos dunes golfvöllinn og fengu stjörnur í augun, en ekki útaf sveiflu fótboltastjörnunnar.
Ronaldo hefur á síðustu árum byggt sér „höll“ eða stórhýsi í glæsilegu íbúðahverfi í Quinta da marina, rétt við Atlantshafsströndina skammt frá bænum Cascais og um 30 km. frá Lissabon í Portúgal. Kostnaður við höllina nemur um 5 milljörðum króna og er talið eitt dýrasta einkahús landsins en það er rétt við golfvöllinn. Klúbbhúsið við þennan flotta golfvöll virkar ekki mikið í samanburðinum að sögn íslensku kylfinganna.
Sigurbjörn Þorgeirsson og Guðmundur Rúnar Hallgrímsson, Frans Páll Sigurðsson og Helgi Birkir Þórisson tók hring á Oitavos dunes vellinum eftir þátttöku á alþjóðlegu móti á velli rétt hjá.
Sigurbjörn sagði í spjalli við kylfing.is að þetta hefði verið æsispennandi.
„Við fórum inn á svæðið við höll CR7 sem er umkringt og öryggisverðir út um allt. Sá sem tók á móti okkur sagði að við værum smá lánsamir, Ronaldo væri einmitt á vellinum núna, væri á æfingarsvæðinu.
Það var búið að blokka leiðina að svæðinu en við sáum kappann í fjarska. Síðan hófum við leik á vellinum og eftir nokkrar holur þá vorum við nálægt æfingasvæðinu. Við „stálumst“ til að mynda aðeins og ég náði einu stuttu myndbroti af kappanum í golfkennslu. Það er ljóst að hann á nokkuð í land en við skulum samt gefa honum það að vera efnilegur,“ sagði Bjössi og hló. (Sjá myndskeið hér að neðan.)

Vildi kaupa golfskálann
Í húsinu Ronaldos eru meðal annars tvær sundlaugar, líkamsræktaraðstaða, heilsulind, einkabíósalur og keilubraut. Sérstaka athygli hefur vakið sundlaug með glerveggjum og gönguleið neðan vatnsyfirborðsins. Í bílakjallaranum munu vera um tuttugu bílar.
Húsið stendur svo nálægt golfskálanum og bílastæði Oitavos Dunes að Ronaldo hafði áhyggjur af því að gestir golfvallarins gætu séð inn á lóðina og að einkalíf fjölskyldunnar yrði skert.
Árið 2022 greindu portúgalskir fjölmiðlar frá því að Ronaldo hefði óskað eftir að kaupa golfskálann og bílastæðið af eigandanum, Miguel Champalimaud.
Hugmyndin var að færa þessa starfsemi annað, þannig að Ronaldo gæti tryggt sér meira næði og jafnframt sérstaka aðkomu að eigninni. Ekki tókst að ganga frá þeim kaupum samkvæmt síðari fréttum.

Sögusagnir um sölu – en Ronaldo nýtir húsið
Í janúar 2026 birtust fréttir um að Ronaldo hygðist selja húsið vegna þess að hann væri ósáttur við hversu lítið næði það veitti.
Síðari fréttir benda hins vegar til þess að fjölskyldan hafi tekið húsið í notkun. Portúgalska íþróttablaðið A Bola greindi frá því 7. nóvember að Ronaldo dveldi þar í fríi, og Georgina Rodríguez hefur birt myndskeið innan úr húsinu.

Golfskálinn er veglegur þó hann sé minni en villa Ronaldos.



