Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Kvaddi með lokahöggi í mánaskini
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
mánudaginn 9. nóvember 2026 kl. 13:26

Kvaddi með lokahöggi í mánaskini

Tómas Rasmus, félagi í Golfklúbbi Reykjavíkur lést 29. október eftir erfið veikindi í lokin. Hann lét ekki fötlun stoppa sig og lék golf síðasta áratuginn og fór meira að segja í golfferðir þótt hann væri bara með annan fótinn í lagi. Tómas sló síðasta höggið á 2. braut í Þorlákshöfn í mánaskini rétt fyrir myrkur í lok september en það var ein af hans síðustu óskum, að slá eitt lokahögg á golfvellinum.

Tómas og Hlíf Erlingsdóttir, eiginkona hans voru dugleg á golfvellinum þrátt fyrir þessa hindrun hjá Tomma.

Erling sonur þeirra segir svo frá þegar faðir hans fór á Þorláksvöll í lok september í færslu á Facebook: „Hann stóð á einum fæti og sveiflaði kylfunni af litlum mætti en mikilli gleði. Ekki var það besta teighögg hans, en hann þurfti þó ekki að taka víti. Þorlákshafnarvöllur var pabba kær og ég skil af hverju: hlýja og fagur hugur í hvert skipti sem hann mætti, alltaf tilbúinn bíll og aldrei vesen. Við jarðsettum tvær kúlur og mun ég í hvert skipti sem ég stilli mér upp á fyrsta teig í Þolló, hugsa til pabba með hlýju.“

Þau hjón léku 18 holur með ritstjóra kylfings.is árið 2023 á Islantilla vellinum á Spáni og við það tækifæri var tekið spjall sem sjá má hér í meðfylgjandi myndskeiði.

Kylfingur.is sendir Hlíf og fjölskyldu innilega samúðarkveðjur.