Akureyrarbær hlaut heiðursverðlaun fyrir stuðning við golfíþróttina
Akureyrarbær hlaut heiðursskjal Golfsambands Íslands þann 7. nóvember á formannafundi GSÍ. Heimir Örn Árnason tók við skjalinu fyrir hönd bæjarins, en viðurkenningin er veitt sveitarfélagi sem hefur skarað fram úr með stuðningi sínum við golfhreyfinguna á Íslandi.
Með afhendingunni þakkar GSÍ Akureyrarbæ fyrir áratuga farsælt samstarf og mikilvægt framlag til uppbyggingar golfíþróttarinnar á Norðurlandi. Bærinn hefur með markvissri stefnu og fjárfestingum skapað aðstæður sem styðja við golfiðkun fólks á öllum aldri.
Í ræðu á fundinum var sérstaklega vakin athygli á umfangsmiklum endurbótum á Jaðarsvelli sem ná aftur til ársins 2007. Þar má nefna endurbyggingu flata, endurbætur á teigum og fjárfestingu í vökvunarkerfi sem stuðlar að auknum gæðum og rekstraröryggi.
Þá hefur framlag bæjarins til uppbyggingar Klappa, æfingasvæðis klúbbsins utandyra, reynst kylfingum mikilvægt. Svæðið þjónar bæði bæjarbúum og kylfingum úr nærliggjandi sveitarfélögum og hefur aukið aðgengi að æfingum og þjálfun.
Viðbygging við klúbbhúsið og uppbygging herma- og inniaðstöðu hafa gert fólki kleift að stunda golf á Jaðri allt árið. Aðstaðan er meðal þeirra bestu á landinu og hefur íslenska landsliðið í golfi gert sér ferð norður undanfarin tvö ár til að æfa við þessar frábæru aðstæður.
Með viðurkenningunni er bænum einnig þakkað fyrir þá framsýni og stuðning sem hefur styrkt íþróttalíf á svæðinu. Við hlökkum til áframhaldandi samstarfs, segir í tilkynningu frá Golfsambandi Íslands.


