Fréttir

Rúnar Arnórsson: „Maður þarf að komast áfram á viljanum“
Íslandsmeistararnir í holukeppni Rúnar Arnórsson og Saga Traustadóttir. Mynd: [email protected]
Ísak Jasonarson
Ísak Jasonarson skrifar
mánudaginn 24. júní 2019 kl. 22:49

Rúnar Arnórsson: „Maður þarf að komast áfram á viljanum“

Rúnar Arnórsson, GK, varð í gær Íslandsmeistari í holukeppni eftir að hafa haft betur gegn Ólafi Birni Loftssyni 3/2 í úrslitaleiknum. Þetta var annar titill Rúnars á jafn mörgum árum.

Í viðtali eftir mótið sagði Rúnar að sér oft gengið vel í þessu móti. Hann sagði einnig að ferðalög undanfarinna vikna og langt mót hafi tekið sinn toll og því hafi reynt á andlegu hliðina undir lokin.

Viðtalið í heild sinni má sjá hér að neðan.