Örninn 2025
Örninn 2025

Fréttir

Sá vertinn fara holu í höggi tvær holur í röð
Þriðjudagur 25. desember 2012 kl. 08:23

Sá vertinn fara holu í höggi tvær holur í röð

Arnór Ingi Finnbjörnsson úr GR náði ekki að sýna sitt allra besta í sumar og komu meiðsli meðal annars í veg fyrir..

Arnór Ingi Finnbjörnsson úr GR náði ekki að sýna sitt allra besta í sumar og komu meiðsli meðal annars í veg fyrir það. Hann varð Íslandsmeistari í holukeppni á síðasta ári en náði ekki að fylgja því eftir með titli í ár. Hans besti árangur á mótaröðinni var 4. sæti á Egils Gull mótinu í Vestmannaeyjum. Arnór varð einnig í öðru sæti í Meistaramóti GR eftir bráðabana um sigurinn við Harald Franklín Magnús. Arnór gerði upp sumarið fyrir Golf á Íslandi.

Hvernig metur þú frammistöðu þína golfsumarið 2012?
Ég byrjaði á góðu róli en leiðinleg meiðsli á versta tíma gerðu mér erfitt fyrir í mikilvægustu mótunum. Enginn sigur í sumar er vonbrigði en ég veit að ég á mikið inni.

Örninn 2025
Örninn 2025

Hvaða kylfingur kom að þínu mati mest á óvart í sumar?
Ég held að það hafi lítið komið mér á óvart í sumar. Hins vegar var árangur Haralds Franklín að vinna báða Íslandsmeistaratitlana og Meistaramót GR frábær. Andri Þór spilaði verulega stöðugt í allt sumar. Árangur Axels á EM einstaklinga og sigur Ragnar Más á Duke of York er það sem stendur upp úr þegar ég horfi til baka.

Ef þú mættir slá einu höggi frá því í sumar aftur, hvaða högg yrði það?
Teighöggið á fyrstu holu í bráðabananum um sigurinn í Meistaramóti GR á móti Haraldi Franklín.

Hvað var það skrýtnasta sem þú upplifðir eða varðst vitni að á golfvellinum í sumar?
Þegar ég sá Hörð Traustason fara holu í höggi tvær holur í röð á Grafarkotsvellinum. Ég held að það verði aldrei toppað sem skrýtnasta augnablik sem ég varð vitni að. Fyrir þá sem ekki vita er Hörður vertinn í Grafarholti og mun betri matreiðslumaður en kylfingur.

Hvað þarft þú að bæta fyrir næsta keppnistímabil?
Lækka meðalskorið.

Hvaða golfholur eru í sérstöku uppáhaldi á Íslandi?
15.-18. hola í Grafarholtinu og 12. og 13. hola á Korpunni. Síðan finnst mér alltaf gaman að spila í Eyjum, Urriðavöll og Hvaleyrarvöll.

Arnór Ingi á 30 sekúndum
Klúbbur: GR
Aldur: 23 ára
Forgjöf: +1,2
Leyndur hæfileiki: Get haldið fótbolta á lofti á hausnum nánast eins lengi og ég vil
Besti hringurinn: 67 högg í Grafarholtinu
Hola í höggi: Fór holu í höggi með landsliðinu í Norðurlandamótinu í Danmörku 2007. Fyrsta skiptið sem ég spilaði fyrir karlalandsliðið
Uppáhalds kylfingur: Tiger Woods. Á Íslandi er það Birgir Leifur fyrir það sem hann hefur gert fyrir íslenskt golf
Draumaráshópurinn: Tiger Woods, Ben Hogan, Ian Poulter
Uppáhalds kylfa: Sandjárnið