Sigurbjörn og Björgvin efstir hjá körlunum
Undir kvöld lauk fyrsta degi Íslandsmóts eldri kylfinga í karlaflokkum í Vestmannaeyjum.
Í flokki 50 ára og eldri er það Fjallabyggðarmaðurinn Sigurbjörn Þorgeirsson sem tekið hefur forystu. Sigurbjörn lék á 69 höggum eða einu höggi undir pari. Næstir á eftir honum koma Frans Páll Sigurðsson, Tryggvi Valtýr Traustason og Björgvin Sigurbergsson á 72 höggum.
Staðan hjá 50 ára og eldri:

Í flokki 65 ára og eldri var það hinn margfaldi Íslandsmeistari Björgvin Þorsteinsson sem lék best allra á 73 höggum eða 3 höggum yfir pari. Björgvin enn að leika frábært golf.
Næstir á eftir Björgvin eru Sæmundur Pálsson og Hörður Sigurðsson á 11 höggum yfir pari.
Staðan hjá 65 ára og eldri:



