Sigurður Arnar er kylfingur vikunnar
Kylfingur vikunnar að þessu sinni er Sigurður Arnar Garðarsson, ungur og efnilegur kylfingur úr GKG sem hefur leikið frábært golf undanfarin ár á Íslandsbankamótaröð unglinga.
Á síðasta tímabili náði hann þeim merkilega áfanga að sigra á 5 mótum í röð og þá var hann valinn efnilegasti kylfingur GSÍ.
Kylfingur.is fékk Sigurð til að svara nokkrum laufléttum spurningum.
Hvenær byrjaðir þú í golfi og hvers vegna?
Ég byrjaði snemma þar sem mamma fór með mig út á golfvöll strax í barnavagni og síðan í kerru þar sem ég fékk að slá bolta. Þegar ég var á leikskóla, Sunnuhvoli í Garðabæ þá notaði ég trjágreinar til þess að sveifla og fann alltaf eitthvað til að slá í. Á endanum fékk leikskólastjórinn hún Helga starfsmann hjá GKG til þess að gera nokkrar golfholur og keypti plastkylfur og bolta fyrir mig og aðra að leika með.
Æfir þú einhverjar aðrar íþróttir?
Ég æfi fótbolta á veturna með Stjörnunni
Helstu afrek í golfinu?
Þrefaldur Íslandsmeistari í holukeppni og tvöfaldur íslandsmeistari í höggleik í aldurshópi 14 ára og yngri. Ég hef einnig unnið tvö mót erlendis í mínum aldurshópi, annað í Þýskalandi og hitt í Bandaríkjunum. Tvö ár í röð hef ég unnið stigameistaratitilinn í 14 ára og yngri og nú í ár var ég valinn efnilegasti kylfingur ársins á vegum GSÍ. Nú í ár náði ég að setja tvö vallarmet, annað á gulum teigum í Grindavík á Íslandsbankamótaröðinni og hitt á rauðum teigum í meistaramóti GKG á Mýrinni.
Hvað er það neyðarlegasta sem komið hefur fyrir þig á golfvellinum?
Ekkert sem ég man eftir.
Hver er þinn helsti styrkleiki og veikleiki í golfi?
Stutta spilið er minn helsti styrkleiki og minn veikleiki er helst rangt kylfuval.
Hverjir eru uppáhalds kylfingarnir?
Jordan Spieth og Tiger Woods.
Hefur þú farið holu í höggi eða verið nálægt því?
Holu í höggi, einu sinni á 9.holu á Mýrinni í GKG.
Hver er „frægasti“ kylfingurinn sem þú hefur leikið með?
Úlfar Jónsson
Hver er besti kylfingurinn sem þú hefur leikið með?
Birgir Leifur Hafþórsson
Hvaða keppnisfyrirkomulag er skemmtilegast í golfi og hvers vegna?
Mér finnst allar keppnir jafn skemmtilegar.
Hvaða íslenski kylfingur er sá besti frá upphafi?
Úlfar Jónsson
Ertu hjátrúarfull/ur hvað varðar golf?
Nei.
Hvert er uppáhaldshöggið í golfi?
80 metrar.
Eftirminnilegasti golfvöllur sem þú hefur leikið á?
Trump Doral völlurinn í Miami.
Hvað finnst þér skemmtilegast og leiðinlegast við golf?
Skemmtilegast er að keppa og mér finnst ekkert leiðinlegt við golf.

Hvað er það sem þú þarf mest að bæta í þínum golfleik?
Kylfuval.
Getur þú sagt okkur frá eftirminnilegri golfsögu af þínum golfferli?
Ég var að keppa á Jekyll Island fyrir þremur árum síðan. Á einni par 3 brautinni var vatn hægra megin og stór krókódíll við vatnið. Ég þurfti endilega að slá í átt að vatninu þar sem krókódíllin var og boltinn endaði 4 metra frá þessu risavaxna dýri. Ég fékk enga lausn. Annað hvort var að slá boltann eða taka víti. Ég tók þá ákvörðun að slá boltann og var mamma og hinir kaddýarnir í hollinu tilbúnir ef krókódíllinn færi af stað. Ég var svo hræddur að ég sló boltann og hljóp í burtu.
Hvaða þrjár golfholur hér á landi eru í sérstöku uppáhaldi?
Það eru 7. á Kiðjabergi, 16. í Borgarnesi og 12. á Hellu.
Hvaða golfholu myndir þú sprengja í loft upp ef þú gætir?
Engar, þær eru bara miskrefjandi og ögrandi.
Staðreyndir
Nafn: Sigurður Arnar Garðarsson
Aldur: 14 ára
Klúbbur: GKG
Forgjöf: 2,1
Fyrirmynd: Jordan Spieth
Masters eða Opna breska? Masters
Skógarvöllur eða strandvöllur? Skógarvöllur
Uppáhaldslið í enska boltanum? Liverpool
Tiger Woods eða Rory McIlroy? Tiger Woods
Uppáhalds matur: Nautasteik
Uppáhalds drykkur: Goji berry
Uppáhalds golfhola: 7. Kiðjabergi
Erfiðasta golfholan: 2. Leirunni
Ég hlusta á: Nútíma tónlist og rapp
Besti völlurinn: Kiðjaberg
Besta skor: 65 á gulum í Grindavík
Besta vefsíðan: kylfingur.is
Besta bíómyndin: The greatest game ever played
Boltinn í pokanum: Titleist prov1x
Kylfur: Driver: Taylormade M2, 3 tré: Titleist 917, hybrid: Titleist 913, járn: Titleist 714 ap2 kbs stiff sköft, wedge : 50°og 54° Cleveland, pútter: Scotty Cameron limited n5 golo.
Skór: Nike


